Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Ingvars Karlssonar dags. 26. júní 2016 varðandi breytingu á deiliskipulagi Sóleyjarima 67-81 vegna húss nr. 81 samkv. uppdr. VSÓ ráðgjafa dags. 20. júní 2016. Í breytingunni fellst stækkun lóðar. Einnig er lagt fram samþykki meðeigenda, ódags. Tillagan var grenndarkynnt frá 18. október til og með 15. nóvember 2016. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar