Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 20. ágúst 2021 var lögð fram fyrirspurn Narfa Þorsteinssonar dags. 11. ágúst 2021 um breytingu á notkun á rými í húsinu á lóð nr. 23 við Dugguvog úr skrifstofu í íbúð. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 27. ágúst 2021.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. ágúst 2021.