Á fundi skipulagsfulltrúa 4. júlí 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. júlí 2014 þar sem sótt er um leyfi til að breyta rými 0305 úr skrifstofum í íbúðarhús og koma fyrir svölum við íbúðina á 3. hæð húss á lóð nr.23 við Dugguvog. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júlí 2014. Gjald kr. 9.500
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 9. júlí 2014. Deiliskipulag af svæðinu er í vinnslu.