Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. júní 2021 var lögð fram fyrirspurn Helga Gunnlaugssonar, dags. 8. júní 2021, um að breyta notkun á þremur eignarhlutum
Öglu ehf.
úr atvinnuhúsnæði í íbúðarhúsnæði (stúdíóíbúðir) á lóð nr. 48 við Sólvallagötu, líkt og á meðfylgjandi ljósmyndum. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. júní 2021.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. júní 2021.