Á fundi skipulagsfulltrúa 20. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa 17. febrúar 2015 þar sem spurt er hvort leyft yrði að innrétta vinnustofur í kjallara og hvort leyft yrði að hækka lyftuhús og stigahús innan marka deiliskipulags í fjölbýlishúsi á lóð nr. 61 við Hverfisgötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2015.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. febrúar 2015. Samræmist ekki deiliskipulagi.