Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 634
Vísað til verkefnisstjóra
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 28. október 2016 var lögð fram umsókn Mænis Reykjavík ehf. , mótt. 18. október 2016, varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Ármúla, Vegmúla, Hallarmúla vegna lóðarinnar nr. 4-4A við Suðurlandsbraut. Í breytingunni felst breyting hvað varðar kvöð um bílastæði, samkvæmt tillögu Urban arkitekta ehf. , dags. 29. maí 2017. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.