Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
THG Arkitekta ehf.
dags. 6. apríl 2020 varðandi breytingu á deiliskipulagi Kvosarinnar, með síðari breytingum, vegna lóðanna nr. 3 og 5 við Pósthússtræti. Í breytingunni felst að skilgreina heimildir fyrir viðbyggingu í porti og endurbyggingu á núverandi bakbyggingu ásamt því að heimilt verði að rífa núverandi bakbyggingu á lóð Pósthússtrætis 5 og byggja í staðinn 272 m2 viðbyggingu á 1. hæð ásamt kjallara, samkvæmt uppdr.
THG Arkitekta ehf.
dags. 8. maí 2020. Tillagan var grenndarkynnt frá 26. maí 2020 til og með 23. júní 2020. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.