Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Mannvits hf.
dags. 14. júní 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Skeifunnar-Fenin vegna lóðarinnar nr. 1 við Grensásveg. Í breytingunni felst aukning á byggingarmagni ásamt fækkun bílastæða, samkvæmt uppdr. Batterísins dags. 11. júní 2013. Tillagan var auglýst frá 15. júlí til og með 27. ágúst 2013. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar