Lagt fram bréf skrifstofu borgarstjóra dags. 23. ágúst vegna samþykktar borgarráðs dags. 22. ágúst 2013 að vísa erindi bankastjóra Landsbankans hf. dags. 16. ágúst 2013 varðandi lóð fyrir höfuðstöðvar bankans í miðbæ Reykjavíkur til meðferðar hjá
Situs hf.
að höfðu samráði við umhverfis- og skipulagssvið og skrifstofu eigna og atvinnuþróunar. Einnig lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. ágúst 2013.