Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. maí 2020 var lögð fram fyrirspurn Jóns Hrafns Hlöðverssonar dags. 27. apríl 2020 um útfærslu á heimildum í gildandi skilmálum deiliskipulags fyrir lóð nr. 14 við Gerðarbrunn er varðar bílastæði. Einnig er lagður fram uppdráttur
Mansard - Teiknistofu ehf.
dags,. 23. apríl 2020. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020.
Svar
Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 12. júní 2020 samþykkt.