Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi og innrétta gististað í flokki II, teg. gistiskáli fyrir 40 gesti í íbúð á 2. hæð íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 74A við Laugarnesveg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2016.