Á fundi skipulagsfulltrúa 13. maí 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. maí 2016 þar sem sótt er um leyfi til að breyta innra skipulagi, fjölga herbergjum , bæta við sturtu og innrétta gististað í flokki II, teg. íbúð fyrir 10 gesti á 2. hæð í íbúðar- og atvinnuhúsi á lóð nr. 47 við Hrísateig. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2016. Gjald kr. 10.100
Svar
Jákvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. maí 2016.