Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
Sýrfells ehf.
dags. 4. maí 2015 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 6 við Blesugróf. Í breytingunni felst að fella niður kvöð um 15 gráðu þakhalla á fyrirhugaðri byggingu, samkvæmt uppdrætti Skipulags-, arkitekta- og verfræðistofunnar ehf. dags. 1. maí 2015. Tillagan var grenndarkynnt frá 22. maí til og með 19. júní 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.