Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Sýrfells ehf.
dags. 16. desember 2014 um breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 6 við Bleikargróf. Í breytingunni felst fjölgun íbúða og breyting á byggingarreit samkvæmt uppdrætti Gests Ólafssonar arkitekts , dags. 15. desember 2014, br. 13. janúar 2015. Tillagan var auglýst frá 4. febrúar til og með 18. mars 2015. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar