Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Jóns Hrafns Hlöðverssonar, mótt. 3. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis, svæði 3, vegna lóðarinnar nr. 18-24 við Láland. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður um 1,5 metra til suðurs á hluta byggingarreits, samkvæmt uppdr.
Mansard teiknistofu ehf.
dags. 12. október 2016. Einnig er lögð fram greinargerð
Mansard teiknistofu ehf.
, dags. 12. september 2016 og samþykki meðlóðarhafa, mótt. 3. nóvember 2016. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. desember til og með 30. desember 2016. Engar athugasemdir bárust.