Síðast Samþykkt á fundi fyrir 9 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 609
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Jóns Hrafns Hlöðverssonar, mótt. 3. nóvember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Fossvogshverfis, svæði 3, vegna lóðarinnar nr. 18-24 við Láland. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður um 1,5 metra til suðurs á hluta byggingarreits, samkvæmt uppdr. Mansard teiknistofu ehf. dags. 12. október 2016. Einnig er lögð fram greinargerð Mansard teiknistofu ehf. , dags. 12. september 2016 og samþykki meðlóðarhafa, mótt. 3. nóvember 2016.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Lálandi 14,16,17 og 23.
Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 7.6 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.