Á fundi skipulagsstjóra 5. október 2012 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 2. október 2012 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta innra skipulagi á efri hæð og í kjallara, bæta við hurð og glugga í kjallara og innrétta gluggalaus rými í sökkli parhúss nr. 42 á lóð nr. 40-42 við Lofnarbrunn. Einnig er lögð fram leiðrétting á nýtingu á gluggalausu rými. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Með vísan til leiðréttra gagna frá umsækjanda dags.16.október 2012 eru ekki gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.