Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn
ASK Arkitekta ehf.
, mótt. 31. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 6 við Álagranda. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit á lóð fyrir hús sem nýtt verður sem vinnuherbergi/tómstundaherbergi, samkvæmt lagfærðum uppdr.
ASK Arkitekta ehf.
, dags. 13. febrúar 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 2. mars til og með 30. mars 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar
Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.