Síðast Samþykkt á fundi fyrir 8 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 621
Samþykkt að grenndarkynna
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 10. febrúar 2017 var lögð fram umsókn ASK Arkitekta ehf. , mótt. 31. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 6 við Álagranda. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit á lóð fyrir hús sem nýtt verður sem vinnuherbergi/tómstundaherbergi, samkvæmt lagfærðum uppdr. ASK Arkitekta ehf. , dags. 13. febrúar 2017. Erindinu var frestað og er nú lagt fram að nýju.
Svar

Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Grandavegi 35, 37, 39, 39B, 41 og 43. Álagranda 2, 2A og 4.
Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.