Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Kjartans Hafsteins Rafnssonar, mótt. 2. desember 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar (Örfirisey) vegna lóðarinnar nr. 27 við Fiskislóð. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli lóðar úr 0,6 í 1,0, samkvæmt uppdr. K.J. hönnunar ehf., dags. 30. nóvember 2016. Einnig er lögð fram útskrift úr fundargerð
Faxaflóahafnar sf.
, frá 29. júní 2016 og umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. desember 2016. Tillagan var auglýst frá 1. febrúar til og með 16. mars 2017. Engar athugasemdir bárust.