Síðast Samþykkt á fundi fyrir 6 árum síðan.
Aðilar sem vísað er í
Skipulagsfulltrúi nr. 654
Samþykkt
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn S.K.Ó. ehf dags. 16. ágúst 2017 um breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 27 við Fiskislóð. Í breytingunni felst hækkun á byggingarmagni lóðarinnar, samkvæmt uppdrætti K.J. hönnun ehf., dags. 30. júní 2017. Einnig er lagt fram bréf Faxaflóahafna sf. , dags. 16. ágúst 2017. Tillagan var auglýst frá 6. september 2017 til og með 18. október 2017. Engar athugasemdir bárust.
Svar

Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar