Á fundi skipulagsfulltrúa 8. apríl 2016 var lögð fram umsókn Valdimars Kristinssonar, mótt. 17. mars 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 31 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að rífa niður núverandi hús á lóð og byggja nýtt tveggja hæða hús ásamt kjallara án bílgeymslu, fjölgun íbúða í fimm og fjölgun bílastæða á lóð í fimm, samkvæmt uppdr. Mannvirkjahönnunar, dags. 17. mars 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2016.
Svar
Neikvætt, með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 14. apríl 2016.