Á fundi skipulagsfulltrúa 29. janúar 2016 var lögð fram fyrispurn Valdimars Kristinssonar, mótt. 22. janúar 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi reita 1.3 og 1.4, Sundin, vegna lóðarinnar nr. 31 við Langholtsveg. Í breytingunni felst að rífa núverandi hús og byggja nýtt. Einnig eru lagðir fram uppdr. Mannvirkjahönnunar, dags. 21. janúar 2016. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 19. febrúar 2016.