Á fundi skipulagsfulltrúa 14. mars 2014 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 11. mars 2014 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta einbýlishúsi í gististað (farfuglaheimili eða gistiheimili) á lóðinni nr. 26A við Frakkastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2014.
Svar
Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 28. maí 2014.