Á fundi skipulagsfulltrúa 13. september 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 10. september 2013 þar sem spurt er hvort leyft yrði að breyta fyrirkomulagi, byggja svalir og starfrækja veitingahús í flokki 2 í einbýlishúsi á lóðinni nr. 26A við Frakkastíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skiplagsfulltrúa dags. 27. september 2013,
Svar
Ekki gerð athugasemd við erindið, sbr. þó skilyrði og leiðbeiningar sem fram koma í umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. september 2013,