Á fundi skipulagsstjóra 9. desember 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. nóvember 2011 þar sem spurt er hvort leyft yrði að lyfta þaki og innrétta íbúð í risi, dýpka kjallara og innrétta félagsheimili í kjallara og á 1. og 2. hæð íbúðarhússins Frakkastígur 16 á lóð nr. 23 við Njálsgötu. Erindinu var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 15. desember 2011.
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsstjóra dags. 15. desember 2011.