Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 30. júní 2015 þar sem sótt er um leyfi til að byggja þriggja hæða fjölbýlishús með sjö íbúðum, steinsteypt, einangrað að utan og klætt múrkerfi og liggjandi bárujárni á lóð nr. 4 við Grettisgötu. Einnig er lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2015. Stærð A-rými: 607,1 ferm., 1.954,1 rúmm. B-rými: 48,2 ferm. C-rými: 19 ferm. Gjald kr. 9.823
Svar
Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 3. júlí 2015.