Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Framsóknarflokksins um kaup á ryksugubíl. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 35. liður, dags. 26. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu borgarlandsins, dags. 22. apríl 2026.
Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 2 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknar flokksins. Fulltrúi Viðreisnar situr hjá við afgreiðslu málsins.