Fyrirspurn
Lögð fram að nýju tillaga fulltrúa Sjálfstæðisflokksins um þvott og sópun stofnbrauta. Tillagan var lögð fram á fundi borgarráðs, sbr. 4 liður, dags. 17. febrúar 2026 og vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagsráðs. Einnig er lögð fram umsögn umhverfis- og skipulagssviðs skrifstofu borgarlandsins dags. 22. apríl 2026.
Tillagan er felld með 4 atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Pírata, Sósíalistaflokks Íslands og Vinstri grænna gegn 3 atkvæðum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins, Framsóknar flokksins og Viðreisnar.