Lögð fram svohljóðandi bókun fulltrúa Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins:
Fulltrúar Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks harma að meirihluti vinstri flokkanna hafi fellt tillögu Sjálfstæðisflokksins um endurskoðun umferðaskipulags við Höfðabakka og Bæjarháls. Tillagan laut að því að ráðast í heildstæða endurskoðun á umferðarskipulagi á mikilvægu svæði þar sem verulegar áhyggjur hafa komið fram um umferðarflæði, öryggi og áhrif á íbúa. Höfðabakki er ein af lykiltengingum borgarinnar og mikilvægt að tryggja að umferð flæði þar greiðlega til að draga úr töfum, auka öryggi og bæta tengingar milli hverfa. Ljóst er að breytingar á svæðinu eru ekki fullreyndar og frekari greiningar eru þegar fyrirhugaðar , sem undirstrikar þörfina fyrir gagnsæja og heildstæða endurskoðun. Með því að hafna tillögunni er tækifæri til að taka málið upp með markvissum hætti ekki nýtt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúans Kjartans Magnússonar:
Fulltrúi Miðflokksins harmar að meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og VG skuli hafna því að taka til endurskoðunar breytingar, sem nýlega hafa verið gerðar á umferðarskipulagi við Bæjarháls, þar á meðal Bæjarháls, Dverghöfða, Stórhöfða og á Höfðabakkabrú. Með því sýnir meirihlutinn að vegna kreddufullrar afstöðu til umferðarmála, er hann ekki fær um að horfast í augu við eigin mistök og leiðrétta þau. Umræddar breytingar hafa m.a. í för með sér umferðaröngþveiti á gatnamótum Höfðabakka og Bæjarháls og stórauknar umferðartafir á stóru svæði í austurhluta borgarinnar. Margar breytinganna virðast hafa verið gerðar í því skyni að tefja vísvitandi fyrir umferð.