Tillögunni er vísað til mats og meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu samgangna og borgarhönnunar.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins er sammála tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins um að brýnt sé að ráðast í þær neyðaraðgerðir á þessum gatnamótum sem um ræðir.