Síðast Samþykkt á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 333
Samþykkt
Fyrirspurn
Lögð fram svohljóðandi tillaga fulltrúa Samfylkingar, Framsóknar, Pírata og Viðreisnar: Lagt er til að vinna heildstæða samantekt á leiðum til að bæta aðgengi, vellíðan og umferðaröryggi gangandi og hjólandi barna á leið til skóla og tómstundaiðkunar með fordæmum erlendis frá um mismunandi leiðir sem skilað hafa góðum árangri. Samantektin verði lögð fyrir stýrihóp um gönguvæna borg sem efniviður í vinnu við þá stefnumörkun.
Svar

Samþykkt.
Lögð fram svohljóðandi bókun áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins:
Fulltrúi Flokks fólksins er sammála því að bæta þarf til muna aðgengi og umferðaröryggi á gönguleiðum skólabarna. Því miður eru enn svæði í borginni þar sem mikið vantar upp á það sem þessi tillaga gengur út á. Hér á undan eru einmitt 2 tillögur frá íbúaráði þar sem einmitt er verið að óska eftir heildstæðri samantekt vegna þeirra þátta sem tillaga meirihlutans gengur út á. Vill fulltrúinn ítreka þá skoðun sína að ekki eigi að þurfa að koma til alvarleg slys á fólki til þess að ráðist verði í aðgerðir varðandi öryggi gangandi vegfarenda. Einnig skiptir líka máli að eitthvað sé gert fyrr en seinna og ekki sé verið að bíða með nauðsynlegar úrbætur á öryggi langt inn í framtíðina vegna skipulagðrar uppbyggingar sem ekki hefur verið lokið. Það er hægt að gera margt til þess að bæta öryggi og aðgengi gangandi vegfarenda til bráðabirgða sem fyrirbyggjandi öryggisaðgerð.