Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 324
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram að nýju fyrirspurn áheyrnarfulltrúa Flokks fólksins um afgreiðslu byggingarleyfis á Jöfursbás 1 sbr. 25. liður borgarráðs dags. 5. september 2024. Einnig er lagt fram svar umhverfis- og skipulagssviðs, byggingarfulltrúa, dags. 19. september 2024. Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun: Fulltrúi Flokks fólksins óskaði upplýsinga um ástæður þess að búið er að samþykkja uppbyggingu á Jöfursbás 1 án þess að leiðrétting hafi farið fram á gatnagerð þar sem landslagsbreytingar sem gerðar voru uppfylla ekki skilyrði samkvæmt skipulagslögum og reglugerðum. Fátt er um svör annað en sagt að gjörningurinn samræmist lögum… “Umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingarleyfisskyld mannvirki á lóðinni Jöfursbás 1 var samþykkt 27. ágúst sl. () þar sem umsókn samræmist ákvæðum laga um mannvirki nr. 160/2010 og er í samræmi við gildandi deiliskipulag.” Þetta samræmist ekki lögum. Í deiliskipulagi er ekki gert ráð fyrir landslagsbreytingu. Brotið hefur verið á eignarrétti sem er friðhelgur og hefur Reykjavíkurborg ekki heimild til að skerða eignir annarra og breyta hæð á lóðarmörkum nema með samþykki lóðarhafa. Reykjavíkurborg ber að afturkalla þessa samþykkt þar til búið er að afmá landslagsbreytingar og hönnun gatna verði í samræmi við deiliskipulag. Það er ekki búið að leiðrétta gatnagerð því landslagsbreytingar sem gerðar voru uppfylla ekki skilyrði samkvæmt skipulagslögum og reglugerðum. Hvað sem þessu líður ætla skipulagsyfirvöld að stækka vandann enn meira. Byggja á fjögur 4-6 hæða fjölbýlishús á bílakjallara með 35 stæðum sem tengist aðliggjandi bílakjallara (Jöfursbás 3). Málið er allt hið vandræðalegasta og er hvergi nærri lokið. 26. Lögð fram tillaga Samfylkingar, Framsóknar, Pírata, Viðreisnar um heildstæða þjónustugreiningu á þjónustuferlum Bílastæðasjóðs. Einnig er lagt fram erindisbréf um starfshóp um verklagsreglur um álagningu gjalda vegna stöðubrota í Reykjavík. samþykkt