Síðast Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs á fundi fyrir 1 ári síðan.
Umhverfis- og skipulagsráð nr. 324
Vísað til umhverfis- og skipulagssviðs
Fyrirspurn
Tillaga íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals um lóða og framkvæmdaskilmála og umgengni á byggingarlóðum sem vísað var til afgreiðslu umhverfis- og skipulagsráðs.
Svar

Vísað til meðferðar umhverfis- og skipulagssviðs, skrifstofu stjórnsýslu og gæða, deildar afnota og eftirlits
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins tekur undir tillögu íbúaráðs Grafarholts og Úlfarsárdals að grípa þurfi til viðeigandi ráðstafana svo að almennir lóða- og framkvæmdaskilmálar vegna uppbyggingar í borgarhlutanum verði virtir. Fulltrúi Flokks fólksins hefur margoft bókað um sóðaskap á og í kringum lóðir sem hefur verið fyrir löngu úthlutað en ekki enn byggt á og er aðeins notað sem geymslustaður fyrir sorp með tilheyrandi sóðaskap og slysahættu. Árið 2023 lagði fulltrúi Flokks fólksins til að gerð verði úttekt á þróun Úlfarsárdals. Þetta var lagt til vegna fjölmargra kvartana sem borist hafa og ná yfir breytt svið m.a. um hversu illa gengur að ljúka uppbyggingu hverfisins. Upplýsingar hafa borist um að lóðarhafar láti lóðir standa auðar árum saman og eru þær fullar af t.d. byggingarúrgangi. Talað hefur verið um að lóðir hafa farið á ,,vergang í bönkum” eins og það er orðað frá einum íbúa. Hverfið telst varla nýtt lengur og talið er að yfir 30 lóðir séu óbyggðar eða ólokið. Gert var ráð fyrir 15.000 íbúum í hverfinu og fullri sjálfbærni. Langt er í land að svo megi verða. Enn er ekki komin matvöruverslun í hverfið og til stóð að hverfið ætti að vera blanda af íbúðar- og atvinnuhúsnæði sem heldur ekki bólar á.