Fyrirspurn
Lagt fram erindi úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála, dags. 8. apríl 2024 ásamt kæru nr. 42/2024, dags. 5. apríl 2024, þar sem kærð er ákvörðun skipulagsfulltrúa Reykjavíkur frá 15. febrúar sl. og varðar umsókn kæranda þar sem sótt var um leyfi til að gera úrbætur á húsinu Eiríksgötu 19 ásamt því að gera tvær íbúðir í kjallara. Einnig er lögð fram greinargerð Reykjavíkurborgar dags. 18. apríl 2024. Jafnframt er lagður fram úrskurður úrskurðarnefndar umhverfis- og sauðlindamála, dags. 20. júní 2024. Úrskurðarorð: Hafnað er kröfu kæranda um að felld verði úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að synja umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á fjöleignarhúsi á lóð nr. 19 við Eiríksgötu.
Áheyrnarfulltrúi Flokks fólksins leggur fram svohljóðandi bókun:
Fulltrúi Flokks fólksins lýsir furðu sinni á þeim óvenju mikla fjölda kæra sem hér koma fram en þær eru nú 11 og hafa sjaldan verið svo margar.. Ítrekað hafa komið upp mál þar sem skipulagsyfirvöld eru sökuð um að segja ekki satt - jafnvel “falsa gögn” eða breyta þeim eftir því sem skjólstæðingar umhverfis- og skipulagssviðs hafa sagt á opinberum vettvangi. Allt of oft fást ekki svör, gögnum og upplýsingum er haldið leyndum og hefur verið fullyrt að ekki sé alltaf unnið af heiðarleika og gagnsæi. Þetta er miður og telur Flokkur fólksins að endurreisa þurfi embætti umboðsmanns borgarbúa eins og það var á árunum 2013-2020. Það voru mistök að leggja af embættið. Verkefni umboðsmannsins voru flutt yfir til innri endurskoðunar og búinn til eins konar „ráðgjafi íbúa“ hjá því embætti. Þetta fyrirkomulag hefur virkað illa og nú hefur fólk sem telur á sér brotið af skipulagsyfirvöldum ekki annað fært en að fara með málið fyrir dómstóla sem er bæði dýrt og tímafrekt. Nefna má mál Loftkastalans en eigendur hans telja borgina hafa brotið illilega á sér og hefur málið velkst um í borgarkerfinu í mörg ár. Það er áhyggjuefni að sjá svo mikið af kærum berast og skoða þarf ástæður þess að þeim hafi mögulega fjölgað.