Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. febrúar 2023 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060857 þannig að byggð er hæð ofaná mh
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 914
11. maí, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. febrúar 2023 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi BN060857 þannig að byggð er hæð ofaná mhl. 01 úr timbri klætt læstri málmklæðningu og innrétta skrifstofur og fundarherbergi, endurnýja lyftu, framlengja stigahús og byggja flóttastiga á suðvesturhlið húss á lóð nr. 10 við Síðumúla. Erindi var grenndarkynnt frá 29. mars til og með 4. maí 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir: Guðni Franzson, dags. 4. maí 2023. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.