Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Gísla B. Ívarssonar, dags. 5. júlí 2022, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.133.1, Landhelgisgæslureits vegna lóðarinnar nr. 61 við Vesturgötu. Í b
Vesturgötu 61
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 914
11. maí, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn Gísla B. Ívarssonar, dags. 5. júlí 2022, um breytingu á deiliskipulagi reits 1.133.1, Landhelgisgæslureits vegna lóðarinnar nr. 61 við Vesturgötu. Í breytingunni sem lögð er til felst að lóðinni er skipt upp í tvær lóðir þ.e. Vesturgata 61 og Seljavegur 8. Á hvorri lóð er skilgreindur byggingarreitur og leyfilegt að byggja eitt íbúðarhús innan hvors reits, samkvæmt uppdr. Verkís dags. 5. desember 2022. Tillagan var auglýst frá 16. mars 2023 til og með 5. maí 2023. Eftirtaldir sendu athugasemdir/umsögn: Minjastofnun Íslands, dags. 18. apríl 2023. Einnig er lögð fram ábending Veitna, dags. 13. mars 2023. Vísað til umsagnar verkefnastjóra.