Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. apríl 2023 var lögð fram umsókn Sigurbjargar Helgu Gunnbjörnsdóttur, dags. 10. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Rimahverfis A-F vegna lóðarinnar nr. 23-25 við Hrísrima. Í breytingunni sem lögð er til felst að færa ytri byggingarreit til suðurs um 0,5 m og að útbygging verði 36 fm og nái út að ytri byggingarreit, samkvæmt uppdr. Sigurbjargar Helgu Gunnbjörnsdóttur, dags 10. mars 2023. Erindinu var vísað til meðferðar verkefnastjóra og er nú lagt fram að nýju. Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að óverulegri breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Hrísrima 19-21 og Hrísrima 27-29. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir grenndarkynningu áður en kynning fer fram samkv. 7.6. gr. gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1051/2022.