Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf., dags. 14. nóvember 2022, ásamt bréfi, dags. 11. nóvember 2022, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettavæðis vegna lóðanna n
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 914
11. maí, 2023
Annað
Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram umsókn Faxaflóahafna sf., dags. 14. nóvember 2022, ásamt bréfi, dags. 11. nóvember 2022, varðandi breytingu á deiliskipulagi Skarfabakka, Klettavæðis vegna lóðanna nr. 6, 8 og 10 við Skarfagarða. Í breytingunni sem lögð er til felst sameining lóðanna, afmörkun lóðar breytist og stækkar til norðurs, bætt er við nýjum byggingarreit og núverandi byggingarreitur fellur niður, samkvæmt uppdr. Arkís arkitekta 16. janúar 2023, br. 10. maí 2023. Tillagan var auglýst frá 16. mars 2023 til og með 5. maí  2023. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lögð fram ábending Veitna, dags. 4. maí 2023. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa í viðauka við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar, sbr. a. liður 2. gr. í viðauka 2.3 um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa nr. 1224/2022.