Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. apríl 2023 var lögð fram fyrirspurn Baldvins Ómars Magnússonar, dags. 24. mars 2023, um að búa til nýja landskika úr jörðinni Stardal á Kjalarnesi. Einn
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 914
11. maí, 2023
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. apríl 2023 var lögð fram fyrirspurn Baldvins Ómars Magnússonar, dags. 24. mars 2023, um að búa til nýja landskika úr jörðinni Stardal á Kjalarnesi. Einnig er lagt fram bréf Mannvits, dags. 12. janúar 2022, Grunnmyndir og hnitaskrár, dags. 6. desember 2021 og 29. nóvember 2022 og yfirlitsmynd, dags. 7. mars 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2023. Umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2023, samþykkt. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Stardalur