Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 13. apríl 2023 var lögð fram fyrirspurn Brimgarðs ehf., dags. 24. mars 2023, um breytingu á deiliskipulagi Melavalla á Kjalarnesi sem felst í heimilt verði að byggja fjögur alifuglahús austan við núverandi alifuglahús á lóðinni þannig að í heildina verði 11 alifuglahús á lóð, en eftir áformaða stækkun kjúklingabúsins verða 196.000 stæði fyrir kjúklinga á búinu, auk þess er gert ráð fyrir haughúsi,samkvæmt uppdr. Nordic, dags. 24. mars 2023. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnastjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 11. maí 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Melavellir