Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar dags. 21. september 2022, um breytingu á deiliskipulagi Starhaga-Þormóðsstaðavegar vegna lóðarinnar nr. 11 við Starhaga. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðarinnar ásamt stækkun á leikskólanum Sæborg, samkvæmt uppdr. A arkitekta dags. 19. september 2022. Einnig er lagt fram bréf A arkitekta dags. 19. september 2022. Jafnframt er lögð fram umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 17. október 2022. Tillagan var auglýst frá 4. nóvember 2022 til og með 16. desember 2022. Eftirtaldir sendu ábendingar: Veitur ohf. dags. 7. desember 2022. Samþykkt með vísan til heimilda um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa sbr. viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsfulltrúa við samþykkt um stjórn Reykjavíkurborgar.