Fyrirspurn
Lögð fram umsókn L157 ehf., dags. 1. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Skúlagarðsreits eystri vegna lóðarinnar nr. 157 við Laugaveg. Í breytingunni sem lögð er til felst stækkun lóðarinnar í samræmi við nýtt lóðarblað, dags. 31. mars 2022, og minnkar nýtingarhlutfall vegna stækkunar lóðar, ásamt því að hámarks byggingarmagn er hækkað, samkvæmt uppdr. JDA ehf. ódags. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.