Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 18. nóvember 2022 var lögð fram fyrirspurn Ásmundar Guðnasonar og Ólínu Jónsdóttur, dags. 3. nóvember 2022, ásamt bréfi, dags. 29. október 2022, um stækkun hússins á lóð nr. 6 við Salthamra, samkvæmt skissum ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 5. janúar 2023. Neikvætt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa, dags. 5. janúar 2023. Fylgigögn Umsögn skipulagsfulltrúa - Salthamrar 6