Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. desember 2022 var lagt fram erindi Mosfellsbæjar, dags. 8. desember 2022, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Korpúlf
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 898
5. janúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. desember 2022 var lagt fram erindi Mosfellsbæjar, dags. 8. desember 2022, þar sem óskað er eftir umsögn um tillögu að breytingu á deiliskipulagi Korpúlfsstaðavegar, dags. 8. desember 2022. Breytingin byggir á tilfærslu skipulagsmarka vegna aðliggjandi skipulags. Einnig eru á uppdrætti innfærðar tillögur að tengingum nýs skipulags við veginn. Sýndar eru gatnatengingar við nýlega kynnta tillögu deiliskipulags verslunar-, þjónustu- og athafnarsvæðis að Blikastöðum vestan vegarins. Tengingarnar eru þrjár, gatnamót, hringtorg og Þverun Borgarlínu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju. Ekki eru gerðar skipulagslegar athugasemdir við erindið.