Lögð fram umsókn Skurn ehf., dags. 7. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Saltvík, Kjalarnesi vegna lóðarinnar Saltvík á Kjalarnesi. Í breytingunni sem lögð er til felst í að færa reit C og D
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 898
5. janúar, 2023
Annað
Fyrirspurn
Lögð fram umsókn Skurn ehf., dags. 7. desember 2022, um breytingu á deiliskipulagi Saltvík, Kjalarnesi vegna lóðarinnar Saltvík á Kjalarnesi. Í breytingunni sem lögð er til felst í að færa reit C og D til að koma reitunum nær núverandi vegi og koma jafnframt reit C fjær reit B, samkvæmt uppdr. TAG teiknistofu ehf. dags. 6. desember 2022. Einnig er lögð fram fornleifaskráning  Fornleifastofnunar Íslands frá 2020. Vísað til meðferðar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1051/2022.