Ásvallagata 21
Ásvallagata 21
Síðast Frestað á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1190
29. nóvember, 2022
Frestað
Fyrirspurn
Örvar Eyjólfsson, Ásvallagata 21, 101 Reykjavík Sótt er um leyfi til að breyta erindi BN033899 m.s.br., salerni breytt í geymslu, svalir stækkaðar, þak hækkað, fallið frá hallandi þakhluta meðfram útvegg aðliggjandi nágranna nr. 19 við Ásvallagötu og frágangur þaks við lóðarmörk húss á lóð nr. 21 við Ásvallagötu. Stækkun: 4,1 ferm., 1,0 rúmm. Erindi fylgir samþykki eiganda í formi áritunar á afrit teikninga aðalhönnuðar dags. 15. ágúst 2022 og yfirlit breytinga unnið á afriti aðaluppdrátta samþykktir 2. maí 2017, erindi BN052739. Erindi fylgir séruppdráttur svala nr. 20-13, dags. 15. ágúst 2022. Erindi fylgir bréf hönnuðar dags. 13. september 2022. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 20. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 18. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 21. október 2022. Erindi fylgir samþykki eigenda nr. 21 við Ásvallagötu, dags. 8. nóvember 2022.
Svar

Frestað.
Málinu vísað til skipulagsfulltrúa til ákvörðunar um grenndarkynningu. Vísað til
uppdrátta nr. 05-01, 05-02, og 20-13, ásamt skuggavarpsuppdrætti dags. 15. ágúst 2022.