Álfheimar 21
Álfheimar 21
Síðast Samþykkt á fundi fyrir 3 árum síðan.
Byggingarfulltrúi nr. 1190
29. nóvember, 2022
Samþykkt
Fyrirspurn
611218-2650 Ankor ehf., Álfheimum 21, 104 Reykjavík Garðar Einarsson, Bandaríkin, Sótt er um leyfi fyrir áður gerðum breytingum, þ.e. reistir milliveggir í bílgeymslu, bílskúrshurðir fjarlægðar, komið fyrir útgangshurð og glugga á rými 02-0101, byggt hefur verið yfir tröppur, komið fyrir hurð í burðarvegg og gluggar á vesturhlið fjarlægðir, jafnframt er sótt um að fjölga fasteignum með íbúð í kjallara, breyta notkun bílskúrs og skipta í tvær notkunareiningar sem vinnustofur, eignarhald vinnustofu 02-0101 verði eign kjallara 01-0001 og vinnustofu 02-0102 verði eign íbúð 01-0201 í húsi á lóð nr. 21 við Álfheima. Stækkun: 5,61 ferm., 23,73 rúmm. Erindi fylgir afrit eignaskiptayfirlýsingar þinglýst 23. október 2000, samþykki meðeigenda dags. 20. júlí 2022 og yfirlit breytinga. Erindi fylgir skýrsla húsaskoðunar dags. 19. október 2022. Breytt umfjöllun á teikningum hönnuðar dags. 1. ágúst 2022, mótteknar þann 6. september 2022. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa 6. október 2022 fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags 6. október 2022. Einnig fylgir bréf skipulagsfulltrúa dags. 11. október 2022. Erindi fylgir uppfært samþykki eigenda og meðlóðarhafa í formi afrits af fundargerð dags. 15. október 2022 og umsögn burðarvirkishönnuðar dags. 17. október 2022.
Svar

Samþykkt.
Samræmist ákvæðum laga nr. 160 / 2010.
Það athugist að um er að ræða samþykkt á áður gerðri framkvæmd sem gerð var án
byggingarleyfis. Óvissa kann því að vera um uppbyggingu og útfærslu framkvæmdar.
Hvorki er skráð verktrygging á verkið né ábyrgðaraðilar. Skilyrt er að
eignaskiptayfirlýsingu vegna breytinga í húsinu sé þinglýst til þess að samþykktin öðlist
gildi.