Fyrirspurn
Gunnar Björn Melsted, Heiðargerði 34, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka þak aðalbygginga um 70 cm, kvistir stækkaðir, komið
fyrir tveimur þakgluggum og færa mæni lægra húss upp í efri, tengja núverandi bílskúr
við aðalhúsið með tengigangi og nýju anddyri, bílskúr verði stofurými, við enda
tengigangs til austurs verði innangengt í glerskála og gróðurhús, gluggi stækkaður í risi
og komið fyrir nýjum glugga á fyrstu hæð norðurhliðar, jafnframt er stefna þakhalla
bílskúrs breytt til norðvesturs á húsi á lóð nr. 34 við Heiðargerði.
Stækkun er: xx,x ferm., xx,x rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 8. nóvember 2021, afrit aðaluppdrátta sem
samþykktir voru þann 8. maí 1952 og 25. júlí 1963.