Fyrirspurn
Gunnar Björn Melsted, Heiðargerði 34, 108 Reykjavík
Sótt er um leyfi til að hækka þak aðalbygginga um 70 cm, kvistir stækkaðir, komið fyrir
tveimur þakgluggum og færa mæni lægra húss upp í efri, tengja núverandi bílskúr við
aðalhúsið með tengigangi og nýju anddyri, bílskúr verði stofurými, við enda tengigangs
til austurs verði innangengt í glerskála og gróðurhús, gluggi stækkaður í risi og komið
fyrir nýjum glugga á fyrstu hæð norðurhliðar, jafnframt er stefna þakhalla bílskúrs breytt
til norðvesturs á húsi á lóð nr. 34 við Heiðargerði.
Stækkun er: xx,x ferm., xx,x rúmm.
Erindi fylgir yfirlit breytinga dags. 8. nóvember 2021, afrit aðaluppdrátta sem samþykktir
voru þann 8. maí 1952 og 25. júlí 1963.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 3. desember 2021
fylgir erindi, ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 3. desember 2021. Einnig fylgir bréf
skipulagsfulltrúa dags. 6. desember 2021.